17.02.2012 17:28

Augnskoðun, sýning of fleira

Heilsufarskröfur, sýning og fleira

Gleðilegt ár kæru terriereigendur.

Árið hjá Rex fór af stað með krafti en haldinn var aðalfundur 16.janúar síðastliðinn.

Aðalfundur félagsins fór fram í húsnæði Plastprent í Reykjavík 16.janúar síðastliðinn. Dagskrá fundar voru venjuleg aðalfundarstörf og aðrar umræður sem.
Á aðalfundinum kom fram að líkt og félögin sem Rex er í samstarfi við er Chinese Crested sýndur saman óháð feldgerðinni.
Einnig var rætt um leifða liti í Miniature Pincher og líkt og samstarfs félögin var ákveðið að black og tan og red eru þeir litir sem eru leifðir samkvæmt staðli.
Chocolate & tan hefur enn ekki fengið samþykki en er það víst allt til skoðunar erlendis.
-------------------------------

Á stjórnarfundi sem haldinn var 1.febrúar síðast liðinn voru augnskoðanir samþykktar hjá félaginu fyrir nokkrar tegundir. Af terrier hundunum er Rat Terrier sá eini sem þarf að gangast undir þessa skoðun.

Frá og með 1.febrúar 2012 þarf að augnskoða nokkrar hundategundir fyrir ræktun.
Nánari upplýsingar er að finna undir heilsufarskröfum eða hér

Augnskoða þarf Chihuahua fyrir pörun!
----------------------------------

Svo er bara að skella á sýning.

Skráning á sýninguna, sem haldinn verður 17.-18.mars 2012, er hafin.
Sýningin fer fram í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. 
Dómari á þessari sýningu er Jonny Anderson frá Írlandi.
Seinasti skráningardagur er 21.febrúar 2012.

Við minnum á keppni ungra sýnenda og heimilishunda sem fram fer á sýningunni.
Skráning fer fram á skrifstofu félagsins í síma                         533-1310             á opnunartíma og í gegnum netfangið rexhundar@rexhundar.is 
Eyðublöðin má nálgast hér fyrir neðan:


Sýningarþjálfanir eru dagana 6., 8. og 13. mars í Reiðhöll Gusts milli kl. 19:30 - 21:00

----------------------------------------------------------------------------------------

Auglýsingar í sýningarskrá

Félagsmönnum gefst kostur á að auglýsa í sýningarskrá félagsins, annaðhvort sína ræktun eða sína vöru.
Um er að ræða tvennskonar auglýsingar.
Án myndar: nafn ræktunar, heimasíða, símanúmer, netfang = 3.000kr.-
Með mynd: nafn ræktunar, heimasíða, símanúmer, netfang = 3.500kr.-

Upplýsingar á netfangi rexhundar@rexhundar.is

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------

Þeir sem áhuga hafa á að gefa bikara fyrir mars sýninguna vinsamlegast hafið samband við stjórn á netfangið rexhundar@rexhundar.is

--------------------------------------------------------------------------------------------------------
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 11
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 33699
Samtals gestir: 11143
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 14:57:29