03.05.2012 10:19
Fyrirlestur í kvöld, 3.maí
Félagið stendur fyrir fyrirlestri í húsnæði Plastprents, Fosshálsi 17-25, fimmtudaginn 3.maí kl: 20.
Fjallað verður um sýningar og sýningarþjálfun á
skemmtilegan og fræðandi hátt.
Fyrirlesturinn er bæði ættlaður byrjendum og lengra komnum.
Frítt er fyrir félagsmenn.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn Rex
27.03.2012 16:58
Úrslit
Úrslit sýningar og myndir má sjá á www.rexhundar.is
Tveir Chihuahua kepptu til úrslita, annar í hvolpaflokki 3-6 mánaða og hinn í besta unghund sýningar.
Perlukots Luci hlaut 2.sætið um besta hvolp sýningar 3-6 mánaða og óskum við eigendum hennar til hamingju.
Hafeyjar Fiðla hlaut 1.sætið um besta unghund sýningar og óskum við eigendum hennar til hamingju.
Við óskum eigendum Chihuahua hundanna til hamingju með sinn árangur um helgina og vonumst til að sjá ykkur öll, og vonandi fleiri til, á næstu sýningu sem og öðrum viðburðum félagsins.
10.03.2012 09:37
Sýning 17.-18.mars
Að þessu sinni er eingöngu sýndur síðhærður Chihuahua, eins og svo oft áður.
Tjúinn er sýndur á laugardeiginum 17.mars:
Kl: 16.00 - 16.20 Chihuahua síðhærður
*Við viljum biðja alla sýnendur að vera mætta með sína hunda einni klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma.
*A.T.H. Sýningartími getur breyst fyrirvaralítið.
*Við viljum einnig minna sýnendur á að hafa með sér heisufarsbækur hundanna til að sýna í skráningu.
Allir hundar verða að vera sprautaðir við Parvo-smáveirusótt
*Sýningartauminn.
*Kúkapoka.
Við þrýfum upp eftir hundinn okkar og reynum að láta hann gera þarfir sínar úti.
*Nammi eða dót. Allt eftir því hvernig þið viljið verlauna hundinn.
*Og ekki vera í fötum sem eru í svipuðum lit og hundurinn.
*Sýnandi hunds þarf að vera á þrettánda aldursári fyrir utan unga sýnendur.
* Vinsamleg tilmæli til sýnanda:
Á sýningarsvæðinu er einungist reiknað með einni manneskju á hund. Áhorfendapallarnir eru fyrir aðra gesti.
Seinasta sýningarþjálfun er svo næsta þriðjudag kl. 19.30 í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.
17.02.2012 17:28
Augnskoðun, sýning of fleira
Heilsufarskröfur, sýning og fleira
Árið hjá Rex fór af stað með krafti en haldinn var aðalfundur 16.janúar síðastliðinn.
Aðalfundur félagsins fór fram í húsnæði Plastprent í Reykjavík 16.janúar síðastliðinn. Dagskrá fundar voru venjuleg aðalfundarstörf og aðrar umræður sem.
Á aðalfundinum kom fram að líkt og félögin sem Rex er í samstarfi við er Chinese Crested sýndur saman óháð feldgerðinni.
Einnig var rætt um leifða liti í Miniature Pincher og líkt og samstarfs félögin var ákveðið að black og tan og red eru þeir litir sem eru leifðir samkvæmt staðli.
Chocolate & tan hefur enn ekki fengið samþykki en er það víst allt til skoðunar erlendis.
Svo er bara að skella á sýning.
23.12.2011 17:11
Gleðileg jól

Kæru félagar.
Hundaræktunarfélagið Rex sendir félagsmönnum sínum
bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Hlökkum til að sjá ykkur öll á nýju ári.
---------------
Dagskrá fundar:
Venjuleg aðalfundar störf.
Aðrar umræður.
Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta á aðalfundinn en hann er einnig góður vettfangur til að viðra ykkar hugmyndir í öðrum umræðum.
Í mars er svo vorsýning félagsins og opnast fyrir skráningu strax eftir jólafrí skrifstofunnar. Sýningin verður helgina 17. og 18. mars.
Chihuahuadeild Rex
28.10.2011 21:27
Úrslit
Einn Chihuahua kláraði meistaratitill á sýningunni, hann INTUCH Tryggur varð íslenskur meistari og óskum við eiganda hans til hamingju með árangurinn.
08.10.2011 16:10
Dagskrá
Chihuahua er sýndur á laugardaginn 15.október frá kl. 15:05 - 15:15
*Við viljum biðja alla sýnendur að vera mætta með sína hunda einni klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma.
*A.T.H. Sýningartími getur breyst fyrirvaralítið.
*Við viljum einnig minna sýnendur á að hafa með sér heisufarsbækur hundanna til að sýna í skráningu.
Allir hundar verða að vera sprautaðir við Parvo-smáveirusótt
*Sýningartauminn.
*Kúkapoka.
Við þrýfum upp eftir hundinn okkar og reynum að láta hann gera þarfir sínar úti.
*Nammi eða dót. Allt eftir því hvernig þið viljið verlauna hundinn.
*Og ekki vera í fötum sem eru í svipuðum lit og hundurinn.
*Sýnandi hunds þarf að vera á þrettánda aldursári fyrir utan unga sýnendur.
* Vinsamleg tilmæli til sýnanda:
Á sýningarsvæðinu er einungist reiknað með einni manneskju á hund. Áhorfendapallarnir eru fyrir aðra gesti.

01.10.2011 22:55
Sýningarþjálfanir
Núna er ekki nema hálfur mánuður í sýningu og hefjast sýningarþjálfanirnar núna eftir helgi. Æfingarnar eru þrjár og verða haldnar í Reiðhöll Gusts í Kópavogi og hefjast allar kl. 19.30.
Fyrsta æfing er þriðjudaginn 4.október.
Önnur æfing er miðvikudaginn 5.október
og sú síðasta er þriðjudaginn 11.október.
Á æfingunum er farið yfir hvernig taumurinn skal vera, uppstilling og það helsta sem dómarinn gæti beðið ykkur um að gera ásamt því að venja hundinn við borð, ef þarf, og láta kíkja á tennur og skoða hann.
Við hlökkum til að sjá ykkur næsta þriðjudag.
31.08.2011 17:23
Seinasti skráningardagur
Ekki er tekið á móti skráningum nema greiðsla hafi borist. Skráning er bindandi.
Þeir sem kjósa að skrá á sýninguna í gegnum síma, netfang eða heimasíðu félagsins geta lagt sýningargjöldin inn á reikning félagsins:
0135-26-1230 kennitala: 570305-1230
Keppni ungra sýnenda er skipt í tvo aldursflokka. Yngri flokkur er fyrir börn á aldrinum 5 -10 ára og eldri flokkur fyrir börn á aldrinum 11 - 16 ára.
Tilgangur keppni ungra sýnenda er að dæma samband hunds og sýnenda og hvernig sýnandi ber sig að með hundinn.
Ræktunarnafn, Tegund
Simi
Heimasíða,netfang
-------------------------------
Mynd
Ræktunarnafn, tegund
Sími
Heimasíða, netfang
31.07.2011 17:16
Blómstrandi dagar og næsta sýning
Í ár ætlum við að hafa tegundarkynningu og eru áhugasamir félagsmenn beðnir um að senda okkur tölvupóst með upplýsingum um hvaða hundakyn þeir eru með og hvaða tími hentar best á netfangið sigrun@rexhundar.is
Stjórn Rex
13.07.2011 13:10
Nýtt netfang Chihuahuadeildar
- 1
